Whattt???
Vá ég var í inntökuprófinu hjá Icelandair í morgun......og VÁ þetta er fjölmennasta próf sem ég hef farið í á ævinni held ég
En já, ég er svona að átta mig á því þessa dagana að ég er að fara að vera í háskóla næstu þrjú og hálfa árið
Anywho, við ætlum að vera í Eyjum um áramótin, það verður skrýtið. Ég held að ég hafi aldrei verið að heiman frá mömmu og pabba um áramót....eða jú lýg því reyndar, var einu sinni með vinum í Rvk. En æji það verður samt skrýtið hehe
En ég blogga örugglega ekkert meira fyrir áramót, svo að ég segi bara
Gleðilegt nýtt ár og ég vil þakka ykkur öllum fyrir árið sem er að líða.....það hefur verið viðburðaríkt og skemmtilegt á allan hátt!!
Með áramótakveðju
Bjarnheiður
Gleðileg Jól
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vonandi hafið þið það sem allra allra best yfir hátíðina. Og reyniði nú að vera góð við hvort annað
Jólakveðja
Bjarnheiður
Fréttir
Jibbí
Ég komst í gegnum Clausus. Tæplega samt......en það slapp
Er númer 42 af 48 sem fara áfram, ég er með 6,75 í meðaleinkunn. Var reyndar að gera mér vonir um meira, en svona er þetta víst þegar maður er kominn í Háskóla........
En, já ég er hamingjusöm með lífið og tilveruna, og ekkert smá ánægð að hafa komist inn í gegnum þetta.
Skrifa meira seinna og Gleðileg Jól
Kv Bjarnheiður
Var að fá........
......boðun í inntökupróf hjá Icelandair
Byrja á skriflegu prófi sem prófar almenna þekkingu. Það verður gaman að sjá hvernig manni gengur í því......maður þarf að fara að fylgjast VEL með fréttum og svoleiðis ! Þeim sem gengur vel í skriflega prófinu eru svo boðaðir í viðtal.......ég hef nú einu sinni áður komist svo langt þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta fer hjá mér í þetta skiptið !! Komst ekki að síðast, þannig að maður þarf að vanda sig núna.
En já, ég er ein heima og hef ekkert að gera. Eða ég lýg því reyndar, ég ætti auðvitað að vera að taka til og þrífa hérna og skúra fyrir jólin.....en ég er að spá í að gera það á morgun bara frekar
Á morgun segir sá lati hihi.....
Magnea vinkona mín er búin að vera hér fyrir sunnan um helgina...hún býr annars á Akureyri city ! Kom til að heimsækja mig og fara að versla ! Og OMG við misstum okkur aðeins í Smáralindinni í gær heh....
Ég keypti TVENNA spariskó......geri aðrir betur! OMG geðveikustu stígvél sem ég hef átt held ég...og ég veit þið trúið því ekki en þau eru með pinnahælum og það er auðvelt að ganga á þeim. Já hljómar skringilega, ég veit, en þetta er staðreynd ! Og gallabuxur auðvitað, nokkra boli, tvær peysur, hmm og hvað meira.......já nokkrar jólagjafir auðvitað ! Bara gaman sko. Ég elska Kringluna og Smáralind.......sérstaklega skóbúðirnar hihihi![]()
Jæja, anywho......ég ætla að fara að.......hmm horfa á sjónvarpið eða eitthvað heh![]()
VÚHÚÚÚÚ !!!!
En það verður fyllerí í kvöld allavega........yeah !! Verður gaman að komast út frá bókunum, klæða sig upp og gera eitthvað annað en læra ! Þvílík snilld verður það.
Svo er það bara jólaþeminn......hann verður líka skemmtilegur
Kv Stelpan í spennufallinu !
Hvað er málið...........
En það var nú að koma fram í fréttum í dag að þessir aðilar sem hringdu þennan dag í lögreglu og höfðu við þá svo ljótt orðalag að það er ekki eftirhafandi á fjölmiðlum, hafa nú víst hringt aftur og beðist afsökunar. Og ég er sammála lögreglu með það að batnandi mönnum er best að lifa. Gott hjá þessu fólki að hringja og biðjast afsökunar á þessu ömurlega framferði sínu.
En það er satt að þetta er ekkert nýtt, og minn maður hefur nú unnið í nokkur ár í lögreglunni hér á Selfossi. Hann sagði mér að þetta væru ekki ótrúlegar fréttir í sínum eyrum....þetta hefur sést áður. Fólk til dæmis skilur stundum ekki þau merki að lögreglubíl með bláum ljósum sé parkerað þvert á veg. Það fattar ekki að þetta sé til að loka veginum !! Og ætlar bara að sveigja fram hjá bílnum og halda áfram ferð sinni inn á lokaðan veg !!! Djííí ég er bara hálf pirruð yfir þessu.
Þegar maður spáir í svona mál og það er fjallað um slíkt í fjölmiðlum, þá get ég ekki sagt að ég sé stolt af því að vera Íslendingur. Maður heldur að maður búi á meðal siðmenntaðs fólks sem er uppfrætt og meðvitað, en svo kemur bara annað á daginn.
Jæja, þá hef ég ausið úr skálum reiði minnar þennan daginn, áfram með prófalesturinn !!
Kv Hjúkrunarfræðingurinn
Smá leikur
1. miðnafnið þitt: 2. Aldur þinn: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómyndin þín: 5. Uppáhalds lagið þitt: 6. Uppáhaldshljómsveitin þin: 7. Dirty or Clean: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Jeij
Kveðja frá bókaorminum
Bjarnheiður
Fyrsta próf á morgun
Próf í Vefja-og Frumulíffræði á morgun. Wish me luck ![]()
Kv Bjarnheiður frumulíffræðingur hehe
