Góða kvöldið hér !!
En það helgast kannski dálítið af því að þetta sumar hefur ekki verið neitt mikið öðruvísi en hin síðustu, svo að það hefur ekki verið mikið markvert til að skrifa um, og ég hef haft nóg annað fyrir stafni en að sitja fyrir framan tölvu !! Maður gerir víst nóg af því yfir vetrartímann. Nú, ég hef verið að vinna uppi á sjúkrahúsi í sumar, og var að vinna síðustu vaktina mína síðastliðinn laugardag. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt sumar vinnulega séð, ég var að vinna sjúkraliðastarf í rauninni, en fékk stundum að vera með hjúkkunum í lyfjagjöfum og ýmsu öðru sem þær koma að á deildinni. Þannig að maður fékk að sjá alls konar hluti, og svo er auðvitað fæðingardeildin þarna bara á ganginum á móti......svo að maður fékk líka stundum að sjá nýfæddu krílin. Og OMG hvað það er gaman að snúllast í kringum þau
Nú, svo var auðvitað farið á Þjóðarann, það var mikið stuð og fjör eins og gefur að skilja !! Veðrið yndislegt, enginn með vesen, ljósin í brekkunni, brekkusöngur, partý í hvítu tjöldunum............... og svo framvegis og framvegis !! Það var náttúrulega BARA fjör alla helgina. Tókum reyndar gott stopp í Eyjum, vorum alveg frá fimmtudegi til miðvikudags. Það var fínt, og alltaf jafn indælt að vera hjá tengdó og geta farið í sturtu bara og svona. Snilld alveg hreint. Má segja að þetta hafi verið hápunktur sumarsins, nema kannski fyrir utan Spánarferðina auðvitað en það er ekkert talið með hehe.......
Nú er þetta góða sumar að renna sitt skeið, og haustið að taka við með tilheyrandi skólastarfi og svoleiðis. Stjúpdóttir mín er flutt til okkar fram að áramótum, og er byrjuð í Sunnulækjarskóla hér á Selfossi. Það er auðvitað voða gaman hjá henni, en líka pínu erfitt á köflum. Ekkert grín að þurfa að skipta um skóla og kynnast nýjum krökkum. Svo er skólinn að byrja hjá mér líka, þannig að það er bara nóg fram undan. Og við fengum ekki inn á skólavistina fyrir stelpuna þannig að það verða nokkrir dagar í mánuðinum sem gætu orðið smá púsluspil, þar sem ég þarf stundum að vera í tímum alveg til kl 17 en hún er búin í skólanum kl 13
Ekkert meira að frétta í bili, blogga seinna !!
KV Skólastelpan
Myndirnar komnar inn
Jæja nú er ég búin að setja inn myndir frá því helsta sem var markvert í Spánarferðinni !!
Annars er lítið að frétta, ég er aðallega í því að passa að það slái ekki að mér í kuldanum hér á Íslandi hehehe
Nei djók !!
Nú tekur við vinna á sjúkrahúsinu þangað til skólinn byrjar aftur.
Later guyz
Kv Bjarnheiður
Jeminn eini
Vá ég var eiginlega næstum búin að gleyma að ég væri með blogg!!! Djííss góð !
En já, það er helst í fréttum að ég hef verið uppi í sveit síðan prófin kláruðust, búin að vera í sauðburðinum með pabba og svaka gaman bara. Svo sæt litlu lömbin!! En það gekk á ýmsu......kindurnar okkar eru ekki alveg að gera sig í því að koma lömbunum frá sér. Stundum kom bara hausinn fyrst en ekki lappir með eins og það á að vera.......stundum kom bara ein löpp.......og ekki gengur það heldur.........stundum fæddust lömbin bara dauð........og það er ekki skemmtilegt heldur......og meira að segja urðu nokkrar af kindunum bara veikar eftir burðinn og drápust !! Þannig að þetta hefur nú oft verið skemmtilegra en í ár. En það fæddust nú sem betur fer þó nokkur lömb eðlilega og þá þurfti ekkert að hjálpa neitt, og það er alltaf gott þegar gengur vel
Og gaman að fylgjast með þeim stækka fyrstu dagana, þau stækka svo hratt !!! Bara skemmtilegt ![]()
Og svo er það líka í fréttum að ég náði öllum prófunum
veiveivei. Fékk meira að segja nokkrar ágætis einkunnir sem ég bjóst alls ekki við.......t.d. náði ég 8 í tölfræði, af öllum fögum !!!! Ég sem hef aldrei verið þekkt fyrir að vera góð að eiga við tölur. Þurfti að nudda augun þó nokkrum sinnum áður en ég trúði tölunni sem ég las á skjánum hehehe. Og fékk líka 8 í líffærafræðinni, og rétt skreið prófið sem ég var svooooo hrædd um að falla í.........en það var lífeðlisfræðin, og ég var ÞVÍLÍKT FEGIN þegar ég las "5" hehe.
Svo byrja ég að vinna á sjúkrahúsinu hér á Selfossi á föstudaginn, verð í 50% vinnu þangað til við förum út þann 11. júní......þvílík tilhlökkun í gangi með það !!! Verður svo gott að komast í sólina, úfffff hehe. Fer svo í 90% starf þegar við komum heim.
Humm já held að það sé ekkert annað nýtt að frétta !
Geri ekki endilega ráð fyrir að ég bloggi meira fyrr en ég kem heim frá Spáni......reyni þá kannski að setja inn einhverjar myndir þaðan og svona ![]()
Later folks
Bjarnheiður
Nei ég er ekki hætt að blogga :)
Nei, ég veit að þið eruð búin að gefa upp alla von um að ég sé til !! En ég er hér enn, og hef það ágætt. Ég er bara búin að vera á kafi í bókunum á milli þess sem ég geri ekki neitt merkilegt, svo að það er ekki mikið að frétta ! Nema kannski það að ég stóðst verknámið á Ljósheimum, og bara með glans leyfi ég mér að segja. Ég hef öðlast vissa reynslu í aðhlynningunni eftir þessar fáu vaktir, og fékk fínustu umsögn frá leiðbeinendum mínum og bara allt gott um það að segja
Mjög skemmtilegur tími í alla staði. Tengdó voru að kaupa íbúð í sömu blokk og við búum í hér í Háenginu, þannig að við erum búin að vera að hjálpa þeim aðeins við að flytja og allt sem því fylgir.
En nú tekur við svakaleg námstörn fram að prófum, þannig að ef ég væri í ykkar sporum myndi ég ekki búast við miklu af þessari bloggsíðu fyrr en eftir 10. maí, en þá er síðasta prófið.
Verður gott þegar þessi önn klárast
Vildi bara svona aðeins skrifa smá
Best of luck to you all !!!
Hjúkrunarneminn
Ljósheimar :)
Jæja, verknámið í hjúkrun er að hefjast ![]()
Fór fyrsta daginn í dag, eða í morgun réttara sagt. Vorum bara stutt í dag, erum tvær að byrja á Ljósheimum núna. Fengum svona aðeins að sjá húsakynnin og aðstæður, og spjölluðum við leiðbeinendurna okkar. Þær eru rosa fínar, þetta verður bara gaman! Ég er allavega uppfull af tilhlökkun, ég held að það sé bara gefandi að vinna með gamla fólkinu, og auðvitað mun maður nýta hvert einasta tækifæri til að læra eitthvað nýtt. Byrja kl 08 í fyrramálið ! Wish me luck ! *smá stress í minni svona til að byrja með en það lagast*
Kv Hjúkrunarneminn
Hvað þarf.....
Ég mælist eindregið til þess að allir þeir sem lesa þetta blogg drífi sig nú inn á www.sudurlandsvegur.is og skrifi sig á undirskriftalistann þar. Ég er allavega löngu búin að því.
Akureyri.............
Jæja, loksins kemur meira blogg !! Ég get ekki látið ykkur æsta aðdáendur þessarar bloggsíðu bíða lengur hehe........
En já þá er maður kominn heim frá Akureyri city, og ég get ekki sagt annað en að þessi ferð hafi verið geðveik í alla staði. Tvær vikur af algjörri snilld barasta. Við Ármann keyrðum norður á mánudegi semsagt (26. febrúar). Ferðalagið var náttúrulega snilld þar sem við fórum á sjúkrabíl sem þurfti að fara í breytingu norður.......það er geðveikt þægilegt að ferðast á svoleiðis hehe, mæli með því
nema nottla ef maður er sjúklingur......þá er það örugglega ekki eins gaman.........en já whatever. Komum norður og vorum eiginlega mest í leti og afslöppun og svona ýmsu í fyrri vikunni, og ég reyndi nú að mæta svona eitthvað í skólann, en með misgóðum árangri hehe. Hitti auðvitað Magneu vinkonu sem var svo yndisleg að lána okkur bara íbúðina sína og gisti sjálf inni í sveit hjá foreldrum sínum !! Takk elsku Magnea fyrir lánið á íbúðinni !!! Snilld alveg. Og já einnig takk KÆRLEGA fyrir að redda svona góðum díl á bílaleigunni
En já svo kom helgin og vinkonur mínar úr skólanum komu norður á föstudeginum. Ég fór á flugvöllinn og sótti þær, alveg grænar í framan eftir flugið thihii
Svo má eiginlega segja að við hafi tekið non-stopp tjútterí nánast alla vikuna !! Djöfulsins rosalegt stuð var á okkur. Fórum á árshátíðarball HA í Sjallanum á laugardagskvöldinu, þar sem Páll Óskar skemmti eins og honum einum er lagið !! Maður hafði varla tíma til að dansa og tjútta af því að það var eiginlega nógu skemmtilegt að standa bara upp við sviðið og horfa á hann!! Hann er bestur í heimi í því að DJ-ast á svona balli, eða það finnst mér allavega. Rosalegt fjör og stuð. Svo auðvitað á sunnudeginum tók þynnkan við með pitsupöntunum og tilheyrandi. Úff, þvílíkt líferni !! Á mánudeginum hófst svo alvara lífsins, SÝNIKENNSLAN Í HJÚKRUN, sem var svo frá 8-4 nánast alla daga vikunnar. Þar var verið að fara í svona hluti eins og persónulega hirðingu, lífsmörk (blóðþrýsting, púls, hita og svo framvegis), og öryggisþarfir og sýkingavarnir. Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt í alla staði fannst mér. Manni finnst maður hafa lært rosalega margt merkilegt þó það sé núna bara verið að fara í algjör basic atriði ! Mjög skemmtilegt og fróðlegt, og ég sé það að ég mun skemmta mér vel í hjúkrunarnáminu ef þetta heldur svona áfram
Nú, svo auðvitað voru staðarnemarnir vitlausir í að hitta okkur partýtútturnar frá Selfossi og við fórum allar saman á Strikið að borða á fimmtudeginum og það var rosalega fínt, góður matur og æðislega gaman að hitta stelpurnar úr staðarnáminu. Síðasti laugardagur fór svo í þynnku uppi á sjúkrahúsi á Akureyri, þar sem verið var að sýna okkur ýmislegt eins og hjartalínurit, heilalínurit, sykurþolspróf og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt.
Humm........þá held ég að ég sé búin að útlista svona það helsta, allavega það sem ég man svona í svipinn hehe........ekki víst að heilasellurnar séu komnar almennilega í gang eftir þessa ævintýraferð !!
Núna er stefnan tekin á að hreinsa aðeins til í kroppnum eftir þennan ólifnað allan, fara í sundið, borða hollan mat og svona. Svo er ég að fara í verknám á Ljósheimum fljótlega, byrja 26. mars og tek 10 vaktir þar. Býst svo alveg eins við því að vera að vinna þar í sumar eftir prófin ! Er allavega að bíða eftir svari frá HSU með það.
Ekki meira í bili..........endilega kommenta !!
Kv Hjúkkan
Akureyri.....
Eitthvað fyrir stelpurnar !
Átakið
Wish me luck........
ÁtaksBjarnheiður
