Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Bjarnheiður Hauksdóttir
  • Staður: Selfoss
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Hjúkrunarnemi

Auglýsing

Klukkan

OMG *stress*

23. október 2007 klukkan 20:25
Vá. Nú er ég stressuð. Það er bara rúmur mánuður í próf og ég á eftir að skila einu rannsóknarverkefni (hópavinna), heilsusálfræðiritgerð og verkefni um hjúkrunarferlið. Plús það að maður vill nú kannski vera búinn að lesa smá í skruddunum svona einhvern tíma áður en fyrsti prófdagur rennur upp bjartur og fagur............eða jafnvel dimmur og drungalegur eins og veðrið hefur verið undanfarið allavega. En já...................STRESSIÐ er að kicka inn. Kannski ágætt að það komi núna, maður vinnur svosem einna best undir pressu.

Ég var að koma að norðan á sunnudaginn úr staðarlotu, og mikið var gaman ! Okkur var kennd skyndihjálp, allt um súrefni og súrefnisgjöf, loftskipti líkamans og sár og sáraskipti. Allt saman mjög skemmtilegt og áhugavert. Og svo var eiginlega það allra skemmtilegasta að vera á rannsóknarstofunni á FSA að skoða ýmislegt sem þar er verið að stússa við. Við pissuðum allar í glas og fengum að skoða þvagið okkar, tókum allar úr okkur hálsstrok og skoðuðum það, og fengum svo að rækta ýmsar bakteríur á æti. Það var MJÖG gaman og fróðlegt að sjá þær vaxa á einum sólahring ! Svo var auðvitað farið út að borða og skemmta sér líka......sér í lagi á föstudeginum !! Vá eruði að grínast með þynnkuna sem ég var haldin á laugardeginum !! Jeremías, ég hélt bara að ég myndi ekki hafa það af þann daginn. En mér tókst nú samt að fara út að borða á Greifann um kvöldið, og vera aftur niðri í bæ til kl 03, en var edrú það kvöldið hehe........eða svona næstum því.

Þannig var nú það. Nú tekur semsagt við verkefnavinna dauðans, og svo bara próflestur ! Í ykkar sporum myndi ég ekki búast við miklum skrifum á þessu bloggi á næstunni, þar sem ég mun verða á kafi ofan í skruddunum á næstu vikum Hlæjandi

Lestrarkveðjur
Bjarnheiður
Þú massar prófin :) tekur þetta bara í aðra nösina ! Gangi þér vel að lesa og ég bið að heilsa heimilisfólkinu í bili :)

Kv,
Rakel í útlandinu
#1
25. október 2007 klukkan 15:39
 
Valgerður
Úff ekki tala um verkefni og prófstress :-(
#2
28. október 2007 klukkan 19:48
Til hamingju með daginn sæta !!!! Njóttu dagsins og taktu þér smá pásu frá lestrinum ;)
#3
01. nóvember 2007 klukkan 10:55
Já til hamingju með afmælið!! ;*** Var næstum búin að gleyma *roðn*

En þetta hefst með skólann.. um að gera að anda bara rólega og reyna að nýta tímann vel ;) Mar er nottla að byrja alltof seint á öllum þessum verkefnum en þetta reddast! Tökum bara íslenska attitjúdið á þetta ;)

Bið að heilsa á heimilið!

Kv. úr snjókomunni á Akureyri! *brrrrrr*
#4
01. nóvember 2007 klukkan 22:55
 
Jóa
Vona að þér hafi gengið rosa vel í prófunum skvís
Sjáumst :)
#5
21. desember 2007 klukkan 01:08

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur