Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Bjarnheiður Hauksdóttir
  • Staður: Selfoss
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Hjúkrunarnemi

Auglýsing

Klukkan

Þessi texti lýsir eiginlega best liðnum dögum........

18. janúar 2009 klukkan 18:37
Áður en ég varð mamma borðaði ég
matinn á meðan hann var heitur, gekk
í hreinum fötum og gat spjallað í
rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég
farið seint í háttinn, sofið út um
helgar, greitt mér daglega og gengið
um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

 

Áður en ég varð mamma velti ég
því aldrei fyrir mér hvort
pottaplönturnar á heimilinu
væru eitraðar.

 

Áður en ég varð mamma hafði
enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

 

Áður en ég varð mamma hugsaði ég
skýrt, hafði fullkomið vald yfir
líkama mínum og tilfinningum
og svaf alla nóttina.

 

Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei haldið grátandi barni föstu til
þess að læknir gæti sprautað það
eða tekið úr því blóðprufu.

 

Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei brostið í grát við að horfa í
tárvot augu og þekkti ekki þá
hamingjuflóðbylgju sem getur
sprottið af einu litlu brosi.

 

Áður en ég varð mamma sat ég
aldrei langt fram á nótt og horfði á
barn sofa eða hélt á sofandi barni
vegna þess að ég tímdi ekki að leggja
það frá mér.

 

Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki hvað ein lítil vera getur haft
mikil áhrif á líf manns og hversu
óendanlega sárt það er að geta ekki
kippt öllum vandamálum í lag.

 

Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki að ég gæti elskað svona heitt og
hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

 

Áður en ég varð mamma þekkti ég
ekki þetta einstaka samband móður
við barn sitt og gleðina sem fylgir
því að gefa svöngu barni brjóst.

 

Áður en ég varð mamma vaknaði ég
ekki tíu sinnum á nóttu til þess að
aðgæta hvort allt væri ekki
örugglega í lagi.

 

Áður en ég varð mamma hafði ég
ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,
sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir
því að eiga barn.

Jeminn eini.....engin frammistaða hjá mér !!

05. október 2008 klukkan 20:29
Já ég hef ekki verið mjög dugleg við að skrifa hér inn, það verður að viðurkennast. En nú er sunnudagur og ég er í smá læripásu Hlæjandi Þá er best að skrifa eitthvað hér inn...............tími til kominn !!

Eins og kom fram í síðustu færslu sem var skrifuð einhvern tímann fyrir lifandis löngu þá er ég s.s. ólétt þessa dagana. Og það er eiginlega vægt til orða tekið......ég er orðin verulega ÓLÉTT núna, enda að nálgast 34. vikuna. Þetta hefur nú verið frekar fljótt að líða, eða mér finnst það allavega núna!! Fannst það sko ekki fljótt að líða fyrstu vikurnar hehe, enda var maður voða óþolinmóður þá, alltaf að skoða hvað gerist í hverri viku og svona blabla eitthvað. Svo hætti ég því nánast og þurfti að fara að snúa mér að sumarvinnunni og ýmsu slíku stússi, og þannig leið sumarið bara eins og skot !! Ég var í Vestmannaeyjum að vinna á sjúkrahúsinu þar allan júlímánuð og það var nú bara svo fljótt að líða að mér fannst ég vera nýkomin þangað þegar það voru allt í einu komin mánaðamót og tími til kominn að fara heim aftur. Þá fór ég að vinna á Ljósheimum á Selfossi, og það var mjög fínt líka. Ég er orðin uppfull af frábærri starfsreynslu eftir þetta sumar hehe Brosandi

En já nú er skólinn eiginlega bara að verða búinn, eða allavega bóklegi hluti þessarar annar. Það er auðvitað búið að fljúga hjá eins og ég veit ekki hvað, allt í einu finnst manni bara vera að koma próf eftir nokkra daga !! En hluti af því er nú reyndar líka það að ég þarf helst að vera búin að komast yfir allt lesefnið áður en krílið mitt fæðist. Ég er ekki alveg að sjá að þegar barnið verður komið í heiminn muni maður hafa einhverja einbeitingu eða tíma í það að vera að lesa........hummm??? Það er samt ekkert grín að þurfa að sitja svona ólétt yfir bókunum allan liðlangan daginn meirihluta vikunnar. Ég er orðin verulega þreytt í bakinu á þessari setu allri saman. Þar að auki lítur út fyrir að þetta barn ætli að verða í stærri kantinum, þar sem í vaxtarsónarnum um daginn var sagt að hún væri nú þegar orðin 10 merkur ! Og þá var ég bara á 32. viku. Ég er líka með frekar mikið legvatn, og það er búið að setja mig í sykurþolspróf og allan þann pakka, en sem betur fer kom það neikvætt út þannig að þetta virðist bara allt saman vera eins og það á að vera, ég er bara ein af þessum konum sem er bara svona Brosandi Vona eiginlega bara að krílið drífi sig í heiminn fyrr en seinna, svona 38-40 vikur væri bara fínt. Fyrr væri kannski heldur snemmt. Ég er búin að kaupa og fá gefins alveg böns af barnafötum, vaggan er klár hjá ömmu og bara eftir að ná í bílstól og svo bleyjurnar og allt svoleiðis dótarí.

Við fórum í þrívíddarsónar og ákváðum eiginlega bara deginum áður að við vildum fá að vita kynið ! Ætluðum í byrjun meðgöngunnar ekkert að fá að vita það og kíktum ekkert í 20 vikna sónarnum......en æji svo var stjúpdóttir mín og kallinn svo spennt að fá að vita það að ég gaf mig með það hehe Ullandi Eins og þið sjáið ef þið skoðið myndirnar sem ég setti inn þá er þetta lítil STÚLKA og ég er auðvitað í skýjunum með það. Búið að kaupa fullt af bleiku heheh.

Fjúff.......mér finnst svo mikið að gera hjá mér núna og er dáldið hrædd um að verða þreytt svona á lokaspretti meðgöngunnar.....en það hefst vonandi allt saman nokkuð vandræðalaust Brosandi Maður reynir að taka þetta á bjartsýninni bara. Ég er að fara í verknám í Reykjavík núna næstu 3 vikurnar á þvagfæraskurðdeild, og svo næstu tvær vikur eftir það fer ég í verknám hér á sjúkrahúsinu á Selfossi í Barna-og kvensjúkdómum. Verð s.s. á fæðingardeildinni svona rétt áður en ég fer í fæðingu sjálf hehe !! Það verður gaman og örugglega góður undirbúningur fyrir mína eigin fæðingu !! Bara vonandi að það verði eitthvað að gera þessar tvær vikur hehe.

Humm þetta er nú hellingur af fréttum fyrir ykkur fréttaþyrsta fólk !! Ég hef ekki meira að segja ykkur í bili, læt þetta duga. Það er ekkert víst að það komi meira blogg frá mér nema kannski bara þegar stúlkan kemur í heiminn.....þá reyni ég kannski að setja inn myndir og svona þegar ég hef tíma Ullandi

Gangi ykkur allt í haginn og ég kveð að sinni !! Og vinsamlegast kvittið fyrir komuna
Glottandi

Í fréttum er þetta helst

11. maí 2008 klukkan 20:32
Jæja nýtt blogg loksins komið Hlæjandi

Ég er búin í prófum og er að bíða eftir einkunnum......veit ekki hversu góðar þær verða sökum þess að einbeitingin núna síðari hluta annar hefur ekki verið upp á sitt besta vegna þess að.........

..............ÉG ER ÓLÉTT
Hlæjandi

Já ég er komin 12 vikur og 4 daga í dag og líður bara vel. Lenti reyndar í smá flensudrasli og þ.a.l. ógleði á sama tíma en það gekk fljótt yfir, tók ekki nema ca. viku-10 daga. Erum búin að fara í 12 vikna sónarinn og allt kom vel út þar, allt á sínum stað og krílið hamast við að vaxa inni í mér Ullandi Það hreyfði sig helling fyrir okkur í sónarnum, sparkaði nokkrum sinnum og vinkaði okkur meira að segja, þannig að þetta var bara yndislegt að fá að sjá að allt er eins og það á að vera. Fengum líka að heyra hjartsláttinn og hann er sterkur og reglulegur og fínn.

Set myndir úr sónarnum inn á myndasíðuna !

Bestu kveðjur frá mér og krílinu !


Sei sei já

13. febrúar 2008 klukkan 12:42
Fjúff loksins er ég búin að smíða bloggið sem þið eruð búin að bíða svo spennt eftir er þaggi?? Hlæjandi

Fyrst er að nefna að það gerðist ekkert markvert í janúar nema bara að skólinn byrjaði auðvitað á fullu spani og það er ennþá brjálað að gera í þeirri deildinni. Lyfjafræðin er alveg sérstaklega snúin finnst mér..........kvíði eiginlega mest fyrir því prófi í vor. En það bjargar manni ansi langt að hún er skemmtileg og maður nennir að lesa hana. Vonandi að það sé nóg til að bjarga manni í gegnum áfangann !

Febrúarbyrjun var hins vegar tekin með trompi. Byrjaði á því að fara til Rvk í verslunarferð og svo vísindaferð fyrstu helgina í febrúar. Vísindaferðin var hin skemmtilegasta, svipuð og í fyrra að því leytinu að það var gist á sama hóteli og það var auðvitað húrrandi fyllerí í gangi hehe. Fórum og skoðuðum slysadeildina, sem var mjög skemmtilegt. Heimsóttum svo tvo staði í viðbót, lyfjafyrirtækið Vistor í Garðabænum og svo Janus starfsendurhæfingu sem er niðri í Iðnskóla til húsa. Snilldarstarfsemi þar í gangi og þetta var allt saman mjög svo fróðlegt og skemmtilegt. Nema hvað að svo um kvöldið var farið út á Viktor að borða og djammað svo fram á nótt. Laugardagurinn var hreint út sagt hræðilegur í þynnku dauðans, og við Ester drifum okkur bara heim til kallanna okkar hehe Ullandi Algjörir gamlingjar hér á ferð ! Gátum bara ekki hugsað okkur að djamma aftur um kvöldið !! Nema hvað, svo á sunnudeginum var bara komið að því að drífa sig norður í staðarlotu í viku. Fórum í flug kl 12 og lentum heilu og höldnu á Akureyri. Fengum bílaleigubíl hjá henni elsku bestu Magneu vinkonu minni......auðvitað á special price for you my friend........takk Magnea mín Koss Ekki laust við að maður væri bara hálf þreyttur ennþá !! Vorum 4 saman í fínni íbúð frá Starfsmannafélagi Árborgar. Svo leið vikan á Akureyri svona ljómandi skemmtilega bara, okkur var kennt um lyfjagjafir og nálauppsetningar, vökvagjafir og svoleiðis, uppsetningu þvagleggja og auðvitað margt fleira sem fylgdi með. Nú er maður bara farinn að verða deildarfær bráðum Hlæjandi eða þannig ! Það er ekki laust við það að maður sé eiginlega orðinn hálf kvíðinn bara, það styttist svo rosalega í það að maður verði útskrifaður og það er sko engin smá ábyrgð sem maður þarf þá að fara að axla úti á deildunum !! En það þýðir ekkert annað en að drífa bara í því !

Núna er að styttast í það að við verðum sendar út á deildir í verknám. Það verður gott að fara að fá loksins að gera eitthvað af því sem maður á núorðið að kunna nokkurn veginn. Maður þarf að fara að æfa sig á þessu öllu saman, og ég hlakka ekkert smá til. Ég er alveg að sjá mig í þessu Hlæjandi En áður en verknámið hefst þurfum við að skila einu verkefni sem er lokaverkefni í einum áfanganum þannig að hann er próflaus ! Það er þvílíkur munur að þurfa núna bara að taka 3 próf í stað 6 eða 7 prófa sem hefur alltaf verið undanfarnar annir ! Það er auðvitað bara allt of mörg próf hehe........

Já....þetta er svona basically það helsta sem er að frétta. En já það er reyndar eitt í viðbót. Eftir norðurferðina einsetti ég mér að ég skyldi hætta að reykja og var fyrsti dagurinn tekinn með trompi í gær. Keypti mér nikótínplástur og setti fyrsta upp í gær og það tókst bara vel.....þ.e.a.s. ég reykti ekki neitt í gær ! Og það er sama í dag......ég hef ekki reykt og á ekki sígarettur...passaði mig á því að klára pakkann fyrst áður en ég byrjaði með plásturinn ! Nú drekk ég bara te og bryð ópal og það virkar bara alveg ágætlega skal ég segja ykkur ! En það er ekki þar með sagt að þetta sé ekki átak.....það koma alveg stundir þar sem maður er alveg að deyja og hættir að sjá tilganginn í þessu.....en það tekur sem betur fer bara nokkrar mínútur að ganga yfir. Bara að láta sig hafa það. Og já nú er ég greinilega farin að nota bloggið til að peppa sjálfa mig upp........sem er kannski bara gott !! Best að leyfa ykkur að fylgjast með bara ! Það er ákveðinn styrkur í því fyrir mig Brosandi

Já. Þá held ég að þetta sé bara komið í bili !

Þið sem lesið þetta blogg: KVITTA FYRIR KOMUNA TAKK Svalur

Bestu kveðjur
Reyklausa konan

.......

09. febrúar 2008 klukkan 21:44
Nýtt blogg er í vinnslu !

Jólin að verða búin :(

05. janúar 2008 klukkan 14:40
Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir gamla árið Hlæjandi

Jæja, allt saman líður þetta og ekki seinna vænna en að fara að blogga fyrsta blogg þessa árs. Jólin að klárast á morgun og svona. Ég er búin að hafa það fínt yfir hátíðina eins og stefnt var að, er ennþá að bíða eftir síðustu einkunninni en þær hafa verið bara alveg ágætar, en ekkert meira en það samt.........held að ég sé með 7 í meðaleinkunn, en það er ekki nóg til að vera í fyrstu einkunn Óákveðinn Þá er bara að taka sig á á næstu önn ! Það ætti nú ekki að vera erfitt þar sem maður er búinn að vera SLUGSI hingað til hehe.........

Um áramótin vorum við hjá mömmu ásamt bræðrum mínum og borðuðum þar þetta líka fína lambakjöt og tilheyrandi, horfðum á Skaupið, spiluðum, og svo framvegis, sem var gríðarlega fínt og notalegt bara. Svo tók auðvitað djammið við, fórum fyrst í partý heim til Viðars sem er einn af sjúkraflutningastrákunum og svo þaðan á ball..........og viti menn, eftir ballið var farið í eftirpartý, en það er eitthvað sem ég hef ekki gert í mörg ár held ég bara. Komum heim kl 07:30 á nýársdagsmorgun. Þynnkan var auðvitað talsverð þegar maður vaknaði upp úr hádeginu
Öskrandi En það var reyndar bara alveg þess virði þar sem við skemmtum okkur alveg konunglega alla nóttina.

Nú taka við bókakaup og skólinn, maður er reyndar í fríi alveg til 10. janúar en þá hefst þetta á fullu spani alveg.

Hömm já ætli ég láti þetta ekki duga bara í bili, og þið sem lesið, KVITTIÐ FYRIR YKKUR
Hlæjandi

Góðar stundir
Bjarnheiður

Jólin koma, jólin koma

23. desember 2007 klukkan 20:12
Já fínt - já sæll.

Eigum við að ræða þetta eitthvað eða?

Haha gott að byrja á því að vera smá fyndin ! Eða ekki
Óákveðinn

    Prófin eru afstaðin og jólin nálgast. Ég held bara að mér hafi gengið svona sæmilega í prófunum, en ekkert meira en það.........en ekki eru allar einkunnir komnar inn ennþá ! Eitthvað slugs á kennurunum þarna á Norðurlandinu !! En þær sem eru komnar eru alveg í lagi.

    Ég á svo sætan kærasta að það er nú alveg met sko.......eftir prófin var mér boðið í Bláa Lónið þar sem hann var búinn að bóka síðdegisdekur fyrir okkur bæði. Svo mætum við á svæðið og fengum heldur betur SURPRISE móttökur! Þar kom í ljós að við vorum semsagt fjögur hundruð þúsundustu gestir ársins og þvílíkt aukadekur sem fylgdi því ! Byrjað var á að afhenda okkur blóm og þvílíkt stóra gjafakörfu með fullt af Blue Lagoon vörum (sem eru by the way ekki af ódýrara né lakara taginu!) og við fengum líka ÁRSKORT í Bláa Lónið! Okkur var svo fylgt í einkaklefa og svo þaðan í Betri stofuna og fengum þar ávexti og kampavín, og svo var farið út í lón í geggjað nudd í 50 mínútur. Þar næst fórum við svo í mat sem var mjög flottur og hann var líka frítt hehe
Ullandi Ekki slæmt það ! Gistum svo um nóttina og tókum verslunardag í Rvík daginn eftir.

    En já, jólin eru að nálgast og ég er nú bara að detta í smá jólaskap, enda ekki seinna vænna þar sem það er komin Þorláksmessa hehe! Í dag fór ég í saltfiskboð hjá mömmu í hádeginu og það var svona smá kikkstart til að koma manni í rétta gírinn.......þ.e.a.s. fatta það að jólin eru á morgun
Brosandi Yfirleitt fatta ég ekki hvað jólin eru nálægt fyrr en í fiskmáltíðinni á Þorláksmessu.....og það var ekkert öðruvísi þetta árið.
Nú tekur bara við að klára að þrífa heimilið mitt í kvöld (af hverju er ég ekki byrjuð, klukkan er orðin átta !!!??). Á morgun ætla ég að njóta dagsins og skemmta mér við að baka smákökur
Ullandi namminamm

    Ég vil enda þessa færslu á því að óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, og reyniði nú að njóta hátíðanna eins og þið mögulega getið ! Það ætla ég allavega að gera
Hlæjandi

Jólakveðjur til allra lesenda !!
Bjarnheiður

OMG *stress*

23. október 2007 klukkan 20:25
Vá. Nú er ég stressuð. Það er bara rúmur mánuður í próf og ég á eftir að skila einu rannsóknarverkefni (hópavinna), heilsusálfræðiritgerð og verkefni um hjúkrunarferlið. Plús það að maður vill nú kannski vera búinn að lesa smá í skruddunum svona einhvern tíma áður en fyrsti prófdagur rennur upp bjartur og fagur............eða jafnvel dimmur og drungalegur eins og veðrið hefur verið undanfarið allavega. En já...................STRESSIÐ er að kicka inn. Kannski ágætt að það komi núna, maður vinnur svosem einna best undir pressu.

Ég var að koma að norðan á sunnudaginn úr staðarlotu, og mikið var gaman ! Okkur var kennd skyndihjálp, allt um súrefni og súrefnisgjöf, loftskipti líkamans og sár og sáraskipti. Allt saman mjög skemmtilegt og áhugavert. Og svo var eiginlega það allra skemmtilegasta að vera á rannsóknarstofunni á FSA að skoða ýmislegt sem þar er verið að stússa við. Við pissuðum allar í glas og fengum að skoða þvagið okkar, tókum allar úr okkur hálsstrok og skoðuðum það, og fengum svo að rækta ýmsar bakteríur á æti. Það var MJÖG gaman og fróðlegt að sjá þær vaxa á einum sólahring ! Svo var auðvitað farið út að borða og skemmta sér líka......sér í lagi á föstudeginum !! Vá eruði að grínast með þynnkuna sem ég var haldin á laugardeginum !! Jeremías, ég hélt bara að ég myndi ekki hafa það af þann daginn. En mér tókst nú samt að fara út að borða á Greifann um kvöldið, og vera aftur niðri í bæ til kl 03, en var edrú það kvöldið hehe........eða svona næstum því.

Þannig var nú það. Nú tekur semsagt við verkefnavinna dauðans, og svo bara próflestur ! Í ykkar sporum myndi ég ekki búast við miklum skrifum á þessu bloggi á næstunni, þar sem ég mun verða á kafi ofan í skruddunum á næstu vikum Hlæjandi

Lestrarkveðjur
Bjarnheiður

Hey !

02. október 2007 klukkan 17:13

.......Þið sem eruð sek um það að lesa þetta blogg án þess að kvitta fyrir ykkur eruð vinsamlegast beðin að bæta úr því hið snarasta !!

Þakka áheyrnina

Leiter Hlæjandi

..................öhm

01. október 2007 klukkan 14:45

Ekkert nýtt að frétta. Sit núna í tíma í Heilsusálfræði og er að hlusta á kennarann með öðru eyranu og skrifa blogg með hinu hehe..........eða þannig sko !! Hræðilega mikið kjaftafag. En bara skemmtilegt. 

Ég verð að biðja ykkur dyggu lesendur afsökunar á bloggleysinu, en það er bara svo mikið annað að gera hjá mér þessa dagana að ég hef ekki haft tíma til að skrifa eitt né neitt. Enda er ekkert merkilegt að segja frá. Allt við það sama, skóli hjá mér, skóli hjá stelpunni, og við erum bara tvær heima þessa vikuna þannig að þetta er ægilega mikið púsl. Hún er búin í skólanum kl 13 en það er iðulega þannig að ég þarf að fara í tíma eftir kl 13, og þá er hún elskuleg móðir mín svo góð að leyfa stelpunni að leika sér í vinnunni hjá henni á meðan. Og það er nú bara sport þegar maður er krakki Ullandi 

Ég er farin að kvíða fyrir prófunum. Okey dáldið snemmt kannski, en mér finnst eins og ég sé komin svo langt aftur úr með námsefnið !! En þetta er svona þegar það er barn á heimilinu sem fær ekki inn á skólavist, og hún þarf sko sína athygli ! Ég er svona að spá hvernig þetta er eiginlega með krakka í dag, hvort að þau kunni bara ekki nógu vel að leika sér? Eða hvað? Mig minnir endilega að ég hafi alltaf verið úti að vesenast þegar ég var 7 ára hehe.........eða kannski fannst mér það bara................ég veit ekki

Well, best að fara að hlusta á kennarann með báðum eyrunum !!

Later
Bjarnheiður

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur